28.4.2008 | 06:12
Snúður er kominn heim!
Elsku besti Snúðurinn minn skilaði sér heim snemma í morgun! Það voru sko miklir fagnaðarfundir! Garðar varla trúði sínum eigin augum þegar hann fór fram til þess að pissa. Hann er sko meira en heill á húfi, hann er bara varla skítugur.
Ooo... Mikið er ég fegin! Nú get ég tekið gleði mína á ný! :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2008 | 13:07
Elsku Snúður minn er týndur!
Snúður er blíðasta köttur sem ég þekki, en hann er var um sig, sérstaklega ef hann er hræddur. Hann er alveg hvítur, með græn augu, og langt skott. Hann er rúmlega 1 árs, frekar stór, u.þ.b. 7 kg.
Hann er eyrna- og örmerktur (7D87/ 2082 2400 0219 847), en var nýbúinn að týna ólinni sinni þegar hann týndist. Hann fældist og hljóp frá mér á leiðinni til dýralæknisins á Skólavörðustíg. Hann hljóp inn í Njálsgötu og hefur ekki sést síðan 22. apríl.
Hann er mjög heimakær og fer aldrei langt frá heimili sínu, hann passar sig mjög vel á Snorrabrautinni, og ratar ekkert vestan megin við hana.
Viljiði vera svo væn að láta mig vita ef þið hafið séð til hans.
Fundarlaun í boði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2008 | 21:11
Lögreglan hvað?
Löggan keyrir á manninn? Og hann er kærður fyrir skemmdir á lögreglubílnum.
Ríkissaksóknari lýst því yfir að ekki væri ástæða til að aðhafast í málinu.
Getur löggan gert hvað sem er við fólk? Af hverju var honum ekki boðið í nefið?
Af hverju er ekki óháð innra eftirlit hérna?
Það er alveg bannað að tala um spillingu innan lögreglunnar á Íslandi...
Ég man allavega þegar Saving Iceland voru að mótmæla í fyrrasumar fyrir utan húsið hjá mér, ég var á leiðinni heim, og var ekki með í mótmælunum, en ég veit ekki fyrr en einhver rannsóknarlögga (í númerslausum búningi) kemur að mér og hrindir mér!!?
Ég spurði kunningja minn þarna í löggunni hvað náunginn héti, en hann þóttist ekki vita það. Kærastinn minn kom og fór eitthvað að reyna að tala við manninn, hvað hann héti o.s.frv. og þá var honum skellt upp við bíl og hann tekinn hálstaki :O
|
Stofnandi Saving Iceland ákærður fyrir eignaspjöll |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2008 | 01:21
Jómfrúarræðan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2008 | 00:13
Stolt lítil systir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 04:38
Ég er Mía litla
![]() | |
![]() | Hvem er du i Mummidalen? |
Mitt resultat: Lille My Du er Lille My! Du elsker spenning og er veldig rampete. Du er også veldig direkte og sier ofte ting rett frem uten å tenke over hvem du kan såre. | |
| Ta denne quizen på Start.no | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2007 | 23:00
Árið 2007
Nú er árinu 2007 að ljúka. Það er búið að vera mjög gott og viðburðarríkt ár. Ég keypti íbúð, og við Garðar og Snúður fluttum inn í mars. Ég útskrifaðist úr Listaháskólanum úr grafískri hönnun, fékk næsthæstu einkunn á árinu fyrir BA ritgerðina.
Lokaverkefnið gerði ég í samvinnu við Auði Haralds, sem er uppáhalds rithöfundurinn minn og var það mjög skemmtilegt samstarf. Hún skrifaði fyrir mig söguna um Litlu rauðhærðu stúlkuna, sem ég myndskreytti. Lotta kisa bættist í hópinn um það leiti, hún og Snúður urðu strax perluvinir.
Um sumarið byrjaði að vinna sem grafískur hönnuður fyrir Barnasmiðjuna og Krummagull og er ennþá þar. Lítið var um ferðalög á árinu, en við unnum bæði mikið og erum búin að afgreiða mikið af íbúðaláninu.
Áramótaheitið mitt er að ferðast meira á næsta ári. Pabbi nældi sér í konu í Moskvu svo við getum fengið ókeypis gistingu þar. Við eigum líka boð á gistingu hjá frænku minni í Bandaríkjunum, sem var að byggja sér sumarhús í Mexico og það væri hægt að keyra þar á milli. Systir Garðars býr líka í Mexico en það væri líka mjög gaman að kíkja á þau. Það er aldrei að vita hvar maður lendir svo. Solveig vinkona er í Japan og það væri skemmtilegt tækifæri til að fara þangað að kíkja á hana.
Það eru bara nokkrir dagar í það að ég verði 23 ára. Ég var að tala um þetta við Völu vinkonu, en hélt því staðfastlega fram að ég væri bara að verða 22. Svona er maður orðinn gamall.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Snúður minn



bjolli
fjolskyldanimexico
ingimarb
runavala